| |
1. 1902150 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Tryggvagötu 15, stækkun líkamsræktarstöðvar. Tillagan hefur verið auglýst, engar athugasemdir hafa borist. | Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt. | | |
|
2. 1907056 - Úthlutun beitarlandsins Ólafsvallaflöt | Samþykkt að úthluta beitarlandinu með fyrirvara um að umbeðin gögn liggi fyrir. Dregið var úr umsóknum og landið hlaut Guðmundur Guðmundsson, til vara voru dregin númer tvö Jónína Birgisdóttir og númer þrjú Kristinn Óskarsson | | |
|
3. 1907057 - Úthlutun beitarlandsins Ásutóftarstykki | Samþykkt að úthluta beitarlandinu með fyrirvara um að umbeðin gögn liggi fyrir. Dregið var úr umsóknum og landið hlaut Guðný Ósk Vilmundardóttir, til vara voru dregin númer tvö Guðmundur Guðmundsson og númer þrjú Jónína Birgisdóttir | | |
|
4. 1907058 - Úthlutun beitarlandsins Grænuborgarstykki | Samþykkt að úthluta beitarlandinu með fyrirvara um að umbeðin gögn liggi fyrir. Dregið var úr umsóknum og landið hlaut Hagsmunafélag hrossaeiganda á Stokkseyri, til vara voru dregin númer tvö Guðmundur Guðmundsson og númer þrjú Guðný Ósk Vilmundardóttir | | |
|
5. 1907059 - Úthlutun beitarlandsins Eystri Rauðárhóll | Samþykkt að úthluta landinu til Jón Sindra Stefánssonar | | |
|
6. 1907060 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir lausar kennslustofur að Sólvellum 6. Umsækjandi: Sveitarfélgagið Árborg. | Frestað. | | |
|
7. 1906191 - Umsókn um hækkun á hámarks mænishæð að Dranghólum 17. Umsækjendur Björgvin Óli Ingvarsson og Þórunn Ásta Helgadóttir | Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir eigendum að Dranghólum 4, 6, 8, 13, 15, 19, 29 og 31 | | |
|
8. 1905087 - Fyrirspurn til bygginganefndar vegna byggingaráforma að Bankavegi 8 Selfossi, fyrirspurnin hefur verið grenndarkynnt, athugasemdir hafa borist. Fyrirspyrjandi: Sigfús Kristinsson | Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við eigendur að Tryggvagötu 9 og kynna fyrirhuguð byggingaráform fyrir eigendum að Tryggvagötu 11. | | |
|
9. 1905413 - Umsókn um endurnýjun á byggingarleyfi að Eyrarlæk 8 Selfossi. Erindið hefur verið grenndarkynnt, athugasemdir hafa borist. Umsækjandi: Guðni Gestur Pálmason. | Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að skipulagsbreytingunni verði hafnað byggt á athugasemdum við grenndarkynningu. | | |
|
10. 1907061 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir að Austurvegi 67. Umsækjandi: ÞG Verk. | Samþykkt að veita stöðuleyfi til sex mánaða. | | |
|
11. 1705113 - Umsókn um leyfi fyrir stækkun fornleifarannsóknar á Vesturbúðarhól á Eyrarbakka | Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt. | | |
|
12. 1907062 - Fyrirspurn um viðbyggingu að Eyravegi 26 Selfossi. | Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir eigendum að Eyravegi 24, Smáratúni 19 og Þóristúni 24 | | |
|
13. 1907063 - Umsókn um lóðina Víkurheiði 6a fyrir dreifistöð. Umsækjandi: Rarik ohf. | Samþykkt að úthluta lóðinni til umsækjanda. | | |
|
14. 1907002F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 22 | | |
|